Átakið „Allir vinna“ hefur verið framlengt til 1. janúar 2013. Endurgreiðsla virðisaukaskatts verður áfram 100% á árinu 2012 en heimild til lækkunar tekjuskattsstofns hefur verið felld niður.

Með allt uppi á borðinu færðu virðisaukaskattinn endurgreiddan

Það er einfalt að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskattsins. Farðu inn á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is, skráðu þig inn á þjónustuvefinn og fylltu út eyðublaðið „beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts.“ Halda þarf til haga frumritum af öllum reikningum sem greiddir hafa verið vegna vinnu á byggingarstað. Reikningarnir þurfa að vera sundurliðaðir í efniskostnað annars vegar og vinnukostnað hins vegar.

Reikningum og staðfestingu á að þeir hafi verið greiddir er síðan skilað til skattstjóra í viðkomandi umdæmi sem endurgreiðir virðisaukaskattinn.